Hoppa yfir valmynd

Leyfislyklar og ISO skrár

Leyfisumsýslan notar Teams til að veita tæknilegum tengiliðum stofnanna og skóla aðgang að leyfislyklum, ISO skrám og verðlistum fyrir Microsoft vörur undir leyfasamning Ríkisins við Microsoft. Tilgangur teymsins er einnig að ýta undir og hvetja til samskipta um þau málefni sem geta komið upp í þessu samhengi.

Fyrir hverja er hópurinn 

Tæknilegir tengiliðir stofnunar / skóla eru sjálfkrafa meðlimir í þessum hópi. (breytingar þurfa að tilkynnast). Ef óskað er eftir fleiri aðilum frá skóla eða stofnun þá þarf að sækja um það sérstaklega á [email protected].  

Teams

Til þess að fá aðgang að Microsoft Teams þá þarf M365 aðgang í skýinu. Fyrir þær stofnanir sem eru ekki enn komnar í skýið og eru með allan sinn Microsoft hugbúnað on-premises þá er hægt að stofna gestareikning.

Athugið

Meðlimir í þessum hópi gangast undir skilyrði og reglur Microsoft um meðhöndlun á leyfislyklum og ISO skrám. 

Helstu reglurnar eru: 

  • Ekki má setja upp neinn hugbúnað áður en viðkomandi leyfi er afgreitt (búið að panta hjá leyfisumsýslunni [email protected]
  • Ekki mál afhenda óviðkomandi leyfislykla eða ISO skrár nema um traustan samstarfs- eða þjónustuaðila er að ræða. 
  • Misnotkun getur varðað við lög um höfundarrétt og er refsivert. 

Sem meðlimur í þessum hópi er veittur aðgangur að öllum lyklum og ISO skrám sem fylgja samningi Ríkisins og Microsoft. Meðlimum er treyst fyrir því að sækja aðeins leyfislykla og ISO skrár sem tilheyra þeirra stofnun / skóla 

Leyfi sem nota ISO skrár

  • Staðvær skrifstofu hubúnaður (on-premises)
  • Windows þjónar (SQL and Windows server)

Sérstakir þjónar s.s. SQL Server og System Center Server eru ekki settir inn þar sem að við uppsetningu skiptir miklu máli að réttir / viðeigandi ISO skrár séu notaðar þ.a. FJS mun útvega þá eftir þörfum einstakra stofnana / skóla þegar við á. 

Leyfi sem nota ekki ISO skrár

Leyfi sem alla undir skýjageirann (e. Tenant)

Ég er ekki með Teams

Til þess að fá aðgang að Microsoft Teams þá þarf M365 aðgang í skýinu.

Fyrir þær stofnanir sem eru ekki enn komnar í skýið og eru með allan sinn Microsoft hugbúnað on-premises þá er hægt að fara inn á https://teams.microsoft.com/start og stofna þar gestareikning.

Þegar þessu er lokið þá hefur þú aðgang að Teams teyminu.

Nýskráning í Teams

Leyfisumsýslan veitir aðeins viðurkenndum aðilum/einstaklingum aðgang að þessum hópi og aðeins þeim sem hafa notendaaðgang hjá stofnun / skóla ([email protected]). Hvorki er leyfilegt að veita þjónustupósthólfum aðgang t.d. „[email protected]“ né notanda á léni þriðja aðila. Þetta er gert þar sem leyfisumsýslan hefur enga leið til að fylgjast með einstökum notendum og er það alfarið á ábyrgð skóla eða stofnunar.

Umsókn

  1. Fyrst sækir þú um aðgang að Teams hópnum á þjónustuvef Umbra.
  2. Uppfylli umsækjandinn öll skilyrði þá fær hann sent boð um inngöngu í tölvupósti.
  3. Næst þarft þú að skrá þig inn
  4. Að lokum þarft þú að gefa eftirfarandi leyfi

Nú ættir þú að vera kominn með aðgang að Teams svæðinu og þar hefur þú aðgang að lyklum og ISO skrám.

Hvernig veiti ég öðrum aðgang?

Ef að stofnun eða skóli er með þjónustu aðila sem á að sjá um þessi mál þá þarf að gera þetta þannig.

Gerður er notenda aðgangur hjá stofnun / skóla ([email protected]) þegar það er komið þá óskar tæknilegur tengiliður eða stjórnandi stofnunar / skóla eftir því að þessum notanda sé boðin þátttaka í þessum hópi.

Ef frekari upplýsingar óskast hafið samband á [email protected]

Verðskrá

Leyfisumsýslan notar Teams til að veita tæknilegum tengiliðum stofnanna og skóla aðgang að leyfislyklum, ISO skrám og verðlistum fyrir Microsoft vörur undir leyfasamning Ríkisins við Microsoft. Tilgangur teymsins er einnig að ýta undir og hvetja til samskipta um þau málefni sem geta komið upp í þessu samhengi.

Verðskrár

  • Verðskrá fyrir skóla
  • Verðskrá fyrir ríkisstofnanir
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum