Hoppa yfir valmynd

Greining á útgjöldum

Alls námu heildarútgjöld árið 2022, til þeirra málaflokka sem félags- og vinnumarkaðsráðherra ber ábyrgð á, 268.376,4 milljónum kr. Fjárheimildir voru 280.425,3 milljónir kr. 

  • Ábyrgð á málefnasviðum 28 og 30 er alfarið hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. 
  • Á málefnasviðum 27 og 29 eru málaflokkar sem tilheyra öðrum ráðuneytum og eru útgjöld þeirra tilgreind hjá viðkomandi ráðuneytum. 
  • Á málefnasviðum 10 og 22 eru málaflokkar sem tilheyra félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu að hluta. 
  • Málefnasvið 32 tilheyrir þremur ráðuneytum og er einn málaflokkur þar á ábyrgð félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. 

Málaflokkur 10.5 Útlendingamál

Málaflokkurinn er 64 milljónir kr. umfram fjárheimild eða 1,4%. Í janúar 2023 fékk liðurinn þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd framlag af almennum varasjóði til að mæta þeim halla sem myndast hafði í árslok 2022 vegna aukins fjölda flóttafólks. Eftir það framlag og áður en bókhaldi vegna ársins 2022 var lokað bættust við leiðréttingarfærslur sem mynda neikvæða afkomu upp á 64 milljónir kr. 

Málaflokkur 22.2 Framhaldsfræðsla og menntun óflokkuð á skólastig

Málaflokkurinn er 54 milljónir kr. innan fjárheimilda eða sem nemur 3,2%. Skýrist það af afgangi vegna íslenskukennslu fyrir útlendinga. Afgangurinn er til kominn vegna styrkloforða til símenntunarstöðva sem ekki voru greidd út, m.a. vegna þess að styrkþegi uppfyllti ekki formskilyrðin til að fá styrkinn greiddan út.

Málefnasvið 27 Örorka og málefni fatlaðs fólks  

Í heild eru útgjöld málefnasviðs 27, Örorka og málefni fatlaðs fólks, 84,4 milljarðar kr. en heildarfjárheimildir ársins voru 85,4 milljarðar kr. Afkoman er jákvæð um einn milljarð kr. eða 1,2%. 

Greiðslur vegna örorku falla á þrjá málaflokka, málaflokk 27.1, sem eru bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar, málaflokk 27.2 sem eru bætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð og málaflokk 27.4 sem eru aðrar greiðslur vegna örorku. Þannig getur einstaklingur með örorku fengið samsettar greiðslur úr tveimur til þremur málaflokkum. Telur ráðuneytið því rétt að gera grein fyrir útgjöldum málaflokkanna þriggja saman. 

Á árinu 2022 varð ekki sú fjölgun í hópi örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega sem forsendur fjárlaga gera ráð fyrir, og er það helsta ástæða jákvæðrar afkomu málaflokkanna þriggja. Ekki er ljóst hvort um varanlega eða tímabundna breytingu er að ræða á nýgengi örorku og þarf lengra tímabil til að meta slíkt. Líkur eru þó á að áhersla síðustu ára á endurhæfingu og vinnumarkaðsúrræði hafi umtalsverð áhrif á nýgengi örorku.

Hluti af efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar til að verja kjör tekjulægstu hópa samfélagsins urðu að veruleika 1. júní 2022 er bætur almannatrygginga hækkuðu um 3%. Hækkunin hafði í för með sér útgjaldaauka að fjárhæð 1,6 milljörðum kr.

Einnig hafði niðurstaða Hæstaréttar í máli nr. 52/2021 um framfærsluuppbót þau áhrif að greiðslur málaflokkanna þriggja hækkuðu um 2,3 milljarða kr. Að lokum var ákveðið að greiða eingreiðslu í desember til örorkulífeyrisþega en fjárheimild þess efnis var hluti af fjáraukalögum ársins. 

Málaflokkur 27.3 Málefni fatlaðs fólks 

Gjöld málaflokksins eru 65 milljónum kr. umfram fjárheimildir eða sem nemur 7%. Tvö viðföng eru á fjárlagaliðnum, framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðra, þar sem einnig bókfærist kostnaður vegna 25% hluta ríkisins í heildarkostnaði vegna NPA-samninga, og réttindagæsla fatlaðs fólks. Halli á starfsemi réttindagæslunnar er um 11,4 milljónir kr. og hallarekstur vegna framkvæmdaáætlunar í málefnum fatlaðs fólks er um 53,9 milljónir kr. Flutt fjárheimild frá árinu 2021 kemur til móts við hallarekstur ársins 2022. 

Málefnasvið 28 Málefni aldraðra 

Í heild eru útgjöld málefnasviðs 28, Málefni aldraðra, 99,7 milljarðar kr. en heildarfjárheimildir ársins voru 101 milljarður kr. Afkoma málefnasviðsins er jákvæð um 1,3 milljarða eða 1,3%. 

Á málefnasviðinu eru þrír málaflokkar vegna greiðslna til ellilífeyrisþega. Málaflokkur 28.1 eru bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar, málaflokkur 28.2 eru bætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð og málaflokkur 28.3 eru þjónusta við aldraða og aðrar greiðslur ótaldar. Hækkun bóta almannatrygginga um 3% frá 1. júní 2022 jók útgjöld bótaliða ellilífeyris um 2,5 milljarða kr. Þrátt fyrir það varð um 1,3 milljarða kr. afgangur af fjárheimildum ársins. Má rekja það fyrst og fremst til hærri lífeyrissjóðs- og fjármagnstekna ellilífeyrisþega.

Málaflokkur 28.3 er 92 milljónum kr. undir fjárheimildum eða um 21%. Liðurinn Eftirlaunasjóður aldraðra heldur áfram að dragast saman og gert er ráð fyrir að hann falli niður á næstu árum. Fjárhæðir sjóðsins eru mjög lágar þannig að lág frávik í krónum talið gefa há hlutfallsleg frávik. Greiðslur vegna félagslegs viðbótarstuðnings fyrir aldraða lækka um 60 milljónir kr. vegna dóms Hæstaréttar í máli nr. 52/2021 um framfærsluuppbót. 

Málefnasvið 29  Fjölskyldumál

Í heild eru útgjöld málefnasviðsins 32,6 milljarðar kr. en heildarfjárheimildir ársins voru 32,8 milljarðar kr. Afkoma málefnasviðsins er því jákvæð um 161,5 milljónir eða 0,5%.

Málaflokkur 29.2 Fæðingarorlof  

Útgjöld til Fæðingarorlofsjóðs eru um 840 milljónir kr. innan fjárheimilda á árinu 2022 eða 3,6%. Ef ekki hefði komið til aukafjárveiting í fjáraukalögum 2022 að fjárhæð 1,2 milljörðum kr. hefði málaflokkurinn farið 361 milljón kr. fram úr fjárheimildum. Fæðingum fækkaði umtalsvert frá fyrra ári en fjöldi lifandi fæddra barna á Íslandi var 4.391 samanborið við 4.879 börn árið 2021. Samhliða lengingu fæðingarorlofsréttar 2020 og 2021 hefur nýting réttarins hins vegar verið að aukast og dreifast yfir lengra tímabil, sérstaklega hjá feðrum.

Málaflokkur 29.3 Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, fjölskyldur

Undir málaflokk 29.3 falla greiðslur bóta samkvæmt lögum um félagslega aðstoð, sem eru mæðra- og feðralaun. Gjöld og fjárheimildir eru í jafnvægi á árinu, afgangur í árslok er 1,5 milljónir kr. eða sem nemur 0,3%. 

Málaflokkur 29.4 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn

Gjöld málaflokksins eru í heild 9,6 milljónum kr. undir heildarfjárheimildum ársins eða 0,2% sem veldur því að rekstur málaflokksins er því sem næst í jafnvægi. Undir málaflokkinn falla fjölbreytt verkefni eins og rekstur umboðsmanns skuldara og Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, bætur almannatrygginga vegna fatlaðra og langveikra barna, auk umönnunargreiðslna sem falla undir bætur skv. lögum um félagslega aðstoð. Auk þess falla undir málaflokkinn ýmsar greiðslur vegna samninga ráðuneytisins um þjónustu og rekstur félagasamtaka og athvarfa.

Málaflokkur 29.5 Bætur til eftirlifenda

Undir málaflokkinn falla greiðslur barnalífeyris vegna andláts foreldra skv. lögum um almannatryggingar, maka- og umönnunarbóta, dánarbóta og barnalífeyris vegna menntunar skv. lögum um félagslega aðstoð. Gjöld málaflokksins eru 31 milljón kr. innan fjárheimilda eða sem nemur 6,6%. 

Málaflokkur 29.7 Málefni innflytjenda og flóttafólks 

Málaflokkurinn er 720 milljónum kr. umfram fjárheimildir eða 30,9%. Frávik málaflokksins frá fjárheimildum má helst rekja til tveggja fjárlagaliða. Á fyrri fjárlagaliðinn bókast lögbundnar endurgreiðslur til sveitarfélaga, sbr. 15. grein laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Gjöld ársins 2022 voru 1.774 milljónir kr. samanborið við fjárheimildir að fjárhæð 281 milljón kr. Umframútgjöld voru nærri 1,5 milljarðar kr. Endurgreiðslur til sveitarfélaga vegna félagsþjónustu hafa aukist verulega á undanförnum árum og má rekja útgjaldaaukninguna til aukins fjölda flóttafólks sem fær hér alþjóðlega vernd. Seinni fjárlagaliðurinn sem veldur miklu fráviki frá fjárheimildum, innflytjendaráð og móttaka flóttafólks, er undir fjárheimildum sem nemur 811 milljónum kr. eða 41,9%. Ekki rættust ítrustu spár um útgjöld vegna flóttafólks sem bókfærast á þennan tiltekna lið, t.a.m. vegna samræmdrar móttöku flóttafólks og húsaleigu og daggjalda vegna tímabundinna búsetuúrræða fyrir flóttafólk. Í heild sinni skýrir afkoma þessara tveggja fjárlagaliða mikil frávik málaflokksins. 

Einnig má geta framúrkeyrslu fjárheimilda hjá Fjölmenningarsetri en þar eru gjöld 36 milljónir kr. umfram heimildir. Mikið hefur mætt á stofnuninni vegna aukins fjölda flóttafólks. Á árinu bókfærðist hjá Fjölmenningarsetri ýmiss kostnaður vegna málefna flóttafólks sem hefði átt heima á fjárlagaliðnum þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd sem fellur undir málaflokk 10.5.

Málefnasvið 30 Vinnumarkaður og atvinnuleysi

Málaflokkur 30.1 Vinnumál og atvinnuleysi 

Málaflokkurinn í heild er 9,6 milljörðum kr. eða 19,2% undir fjárheimildum sem skýrist aðallega af lækkandi atvinnuleysi. Atvinnuleysistryggingasjóður er 9,4 milljörðum kr. undir fjárheimildum eða 20,4%. Skráð atvinnuleysi fór stöðugt lækkandi á árinu 2022 eða úr 5,2% í janúar niður í 3,4% í desember og var að meðaltali 3,9% á árinu. Ábyrgðasjóður launa er 286,1 milljón kr. innan fjárheimilda eða 20,7% sem skýrist m.a. af því að gjaldþrot fyrirtækja voru skv. upplýsingum frá Hagstofu Íslands 60% færri en árið áður. 

Málaflokkur 30.2 Vinnumarkaður

Málaflokkurinn er 44 milljónir kr. umfram fjárheimildir eða sem nemur 4%. Flutt fjárheimild að fjárhæð 95 milljónir kr. frá árinu 2021, jafnar út hallann og gott betur þannig að málaflokkurinn endar í 51 milljóna kr. afgangi í lok árs. 

Málefnasvið 32 Lýðheilsa og stjórn velferðarmála

Málaflokkur 32.4 Stjórnsýsla félagsmála

Málaflokkurinn er um 23 milljónum kr. undir fjárheimildum ársins eða 0,7%. Helstu ástæðu frávika má rekja til fjárlagaviðfangsins aðalskrifstofu félags- og vinnumarkaðsráðuneytis. Þar er afkoma ársins 2022 neikvæð sem nemur 118 milljónum kr. en á móti var 135 milljóna kr. afgangur af rekstri aðalskrifstofu árið 2021. Því var gengið á þann afgang og flytjast 16,7 milljónir kr. yfir til ársins 2023. Helstu ástæður umframútgjalda í rekstri aðalskrifstofu ráðuneytisins má rekja til aukinna verkefna og viðbótargjalda sem sköpuðust vegna uppskiptingar Stjórnarráðsins. Í ljósi afgangs árið 2021 var tekin sú ákvörðun að nýta ekki varasjóði ráðuneytisins til að standa straum af viðbótarútgjöldum. 

Tryggingastofnun fékk 300 milljóna kr. fjárveitingu árlega í þrjú ár, 2021-2023, samtals 900 milljónir kr., til endurnýjunar á tölvukerfum stofnunarinnar. Verkefnið er komið vel af stað og undirbúningsfasa lokið en útboðsferli og kærur vegna niðurstöðu útboða seinkuðu verkefninu um tæpt ár. Af þeim sökum er 212 milljónir kr. afgangur 2022 og áætlað að verkefninu ljúki ári síðar en upphaflega var gert ráð fyrir eða 2024. Aðrar stofnanir og verkefni málaflokksins eru nálægt jafnvægi, að frátöldum tveimur safnliðum sem eru lítilsháttar umfram heimildir. 

Fjárfesting málefnasviða og málaflokka

Málaflokkur 29.4 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn

Óhafin fjárfestingarheimild vegna byggingu húsnæðis vegna öryggisvistunar er um 590 milljónir kr. Byggingaráform hafa tafist meðal annars vegna þess að ekki liggur fyrir endanleg staðsetning húsnæðisins. Óvíst er hvenær framkvæmdir hefjast en þegar það gerist verður fjárfestingarheimild málaflokksins fullnýtt. 

Ráðstöfun varasjóða 2022

 

Styrkir og samningar ársins 2022

 
 
 

 

Lista yfir velferðarstyrki árið 2022 má sömuleiðis nálgast á vefnum. Þar er einnig að finna lista yfir styrkþega úr þróunarsjóði innflytjenda

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum