B. Fræðsla og forvarnir |
Lýsing á aðgerð
Unnið verði fræðsluefni um stöðu hinsegin barna og ungmenna í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi, auk þess sem útbúnar verði leiðbeiningar fyrir þá sem bera ábyrgð á slíku starfi. Tekið verði mið af þörfum ólíkra hópa í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi. Aðilar sem bera ábyrgð á starfseminni setji sér jafnréttisstefnu sem taki til þátttöku og aðgengis hinsegin barna og ungmenna að íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi.
Markmiðið verði að tryggja þátttöku og aðgengi hinsegin barna og ungmenna að íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi.
Tímaáætlun: 2022–2023.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Markmið 10.2 og 10.3.
Staða í október 2023: Samið var við Samtökin 78 um að skrifa og gefa út bækling með fræðsluefni um stöðu hinsegin barna og ungmenna í íþrótta- tómstunda og fræðslustarfi. Verkefnið er komið vel á veg.
Ábyrgð
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Komið vel á veg