Gátlisti

Gátlisti

við mat á fyrirkomulagi verkefna sem ríkið sinnir nú þegar og verkefna sem til athugunar er að ríkið sinni

Æskilegt er að ráðuneyti og stofnanir endurmeti reglulega fyrirkomulag verkefna sinna, enda þarf ríkið stöðugt að leita leiða til að bæta árangur í ríkisrekstri og laga starfsemi sína að breytingum í samfélaginu, sem og í ríkiskerfinu sjálfu. Gátlisti þessi er hugsaður til nota við yfirferð einstakra verkefna og verkefnaflokka. Hann getur jafnframt nýst við mat á nýjum verkefnum sem til athugunar er að ríkið sinni.

Markmið verkefnisins – er sannarlega þörf á að verkefninu sé sinnt?

1. Hver er tilgangur verkefnisins og mikilvægustu markmið þess?
2. Hver er þörfin fyrir verkefnið?
3. Hverjir njóta helst ávinnings af því?
4. Er til staðar lögbundinn eða samningsbundin réttur sem leiðir til þess að verkefninu verði að sinna?

Atriði sem hafa áhrif á mat á þátttöku ríkisins í úrlausn verkefnisins – eru gild rök fyrir því að ríkið taki þátt í úrlausn þess?

5. Hver eru líkleg áhrif verkefnisins á önnur verkefni sem ríkið sinnir; minnkar eða eykst þörfin fyrir þau?
6. Hvernig er líklegt að verkefnið þróist, t.d. hvað varðar kostnað og fjölda notenda?
7. Hverjar yrðu afleiðingar þess ef ríkið ákveður að sinna ekki verkefninu?
8. Er kostnaður réttlætanlegur með tilliti til væntanlegs ávinnings af verkefninu?
9. Hvaða óvissu er verkefnið háð?
10. Hvaða áhætta er fólgin í þátttöku ríkisins í verkefninu?

Verkefni innan eða utan ríkis – þarf ríkið að sinna verkefninu sjálft?

11. Er um að ræða stjórnsýslu (stefnumótun og stjórnvaldsákvarðanir), eftirlit eða þjónustu (framleiðslu)?
12. Er verkefnið tímabundið eða ótímabundið?
13. Hversu umfangsmikið og víðfeðmt er verkefnið?
14. Sinna aðrir, innan eða utan ríkisins, að sams konar eða svipuðum verkefnum?
15. Hvaða rök eru fyrir því að verkefnið verði leyst innan ramma ríkisins?
16. Hvað kemur helst í veg fyrir að aðrir en ríkið beri kostnaðinn?
17. Er verkefnið viðskiptalegs eðlis?
18. Er verkefnið unnið í samkeppni við aðra?
19. Hvað mælir á móti því að fela aðilum á markaði að annast verkefnið þrátt fyrir að ríkið greiði fyrir það?

Skipulag verkefnisins innan ríkisins – hvernig er verkefninu best fyrir komið?

20. Þurfa ákvarðanir varðandi verkefnið að vera óháðar ráðherravaldi?
21. Þarf sérstaka stofnun um verkefnið eða er mögulegt að leysa það innan ráðuneytis eða stofnunar sem þegar er starfandi?
22. Hvernig verður tengslum valds og ábyrgðar fyrirkomið?
23. Hvernig verður stjórnkerfi verkefnisins og samskipti við ráðuneyti?
24. Hvernig á að tryggja eftirlit með verkefninu?


Framkvæmdanefnd um stofnanakerfi og rekstur verkefna ríkisins


Þetta vefsvæði byggir á Eplica