Námskeið 2010-2011

Engin námskeið eru í boði sem stendur.

Hins vegar hefur lengi verið áhugi innan fjármálaráðuneytisins á því að efla og auka möguleika stjórnenda á fræðslu um stjórnun sem tæki mið af því regluverki sem opinberir stjórnendur starfa innan.

Starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytisins hefur í samstarfi við Háskóla Íslands, stjórnmálafræðideild, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, Samband íslenskra sveitarfélaga og Félag forstöðumanna ríkisstofnana komið á laggirnar 30 eininga námi á meistarastigi í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í opinberum rekstri.

Markmið námsins er að auka hæfni núverandi stjórnenda í opinberum rekstri til að takast á við stjórnunarverkefni sín, opna möguleika á tilfærslu stjórnenda hjá ríki og sveitarfélögum og gefa þeim sem hyggja á störf á þessum vettvangi kost á viðeigandi námi.

Gert er ráð fyrir að námið sé í flestum tilvikum stundað samhliða starfi og er tekið sérstaklega mið af því við skipulag þess.

Námið hóst haustið 2009 og má hér finna nánari upplýsingar um skipulag þess.