Auglýsing og veiting starfs

Auglýsing og veiting starfs

Starfsmenn í þjónustu ríkisins eru ýmist skipaðir, settir eða ráðnir til starfa. Algengast er að starfsmenn séu ráðnir til starfa með ráðningarsamningi. Skipun eða setning er notuð þegar um embætti er að ræða samkvæmt 22. gr laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins (stml.). Almenn skilyrði þess að fá skipun, setningu eða ráðningu í starf eru talin upp í 6. gr. stml.

Auglýsingaskylda

Meginreglan er sú að skylt er að auglýsa opinberlega öll laus störf í þjónustu ríkisins, bæði embætti og önnur störf (7. gr. stml.).

Embætti skulu auglýst í Lögbirtingablaði. Tilteknar undantekningar eru frá auglýsingaskyldunni varðandi embætti. Þær eru taldar upp í 1. mgr. 7. gr. stml. með síðari breytingum.

Önnur störf skulu auglýst opinberlega samkvæmt reglum sem fjármála- og efnahagsráðherra setur. Í reglum um auglýsingar á lausum störfum, nr. 464/1996, með síðari breytingum, er kveðið á um almenna auglýsingaskyldu en með tilteknum undantekningum þó. Þar eru einnig talin upp þau atriði sem þurfa að koma fram í auglýsingu og hvar hún skuli birt. Fullnægjandi birting auglýsingar getur verið með tvennum hætti. Annars vegar með því að birta auglýsingu á vefnum starfatorg.is ásamt tilvísun til hennar í yfirlitsauglýsingu sem birt er í dagblaði sem gefið er út á landsvísu. Hins vegar með því að birta auglýsingu í dagblaði sem gefið er út á landsvísu.

Starfatorg.is:

Dreifibréf um auglýsingar:

Spurt og svarað um auglýsingar:

Skipun/setning í embætti

Fjallað er um skipun eða setningu í embætti í V. kafla starfsmannalaga (stml.).

Yfirleitt er það hlutaðeigandi ráðherra sem fer með valdið til að skipa eða setja í embætti. Embættismenn skuli skipaðir tímabundið til fimm ára í senn nema á annan veg sé mælt í sérákvæðum laga um viðkomandi stofnun eða starfsemi. Skipunartíminn framlengist sjálfkrafa um önnur fimm ár hafi viðkomandi embættismanni ekki verið tilkynnt, a.m.k. sex mánuðum áður, sú ákvörðun að embættið verði auglýst laust til umsóknar (23. gr. stml.).

Ganga skal skriflega frá skipun eða setningu í embætti. Þegar embættismaður er skipaður til starfa skal á sérstöku fylgiblaði upplýsa hann með skriflegum hætti um skipunarkjör hans. Í reglum nr. 413/1996, um skyldu til að upplýsa embættismann um skipunarkjör, er kveðið á um þau atriði sem að lágmarki þurfa að koma fram í slíku fylgiblaði. Gert er ráð fyrir þessum atriðum í fyrirmyndum að fylgiblöðum sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur útbúið. Fyrirmyndir má finna á síðunni eyðublöð og form.

Það er ekki skylt að nota þessi eyðublöð. Ef þau eru ekki notuð verður að gæta að 2. gr. nefndra reglna um lágmarksákvæði í fylgiblaði með skipun.

Verði breytingar á skipunarkjörum umfram það sem leiðir af lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða kjarasamningum, skal staðfesta breytingarnar með skriflegum hætti, sbr. 4. gr. reglnanna.

Ráðning í starf

Fjallað er á um ráðningu í starf í VIII. kafla starfsmannalaga (stml.).

Forstöðumaður stofnunar ræður starfsmenn til starfa nema á annan veg sé mælt í sérákvæðum laga um viðkomandi stofnun eða starfsemi. Starfsmenn eru almennt ráðnir ótímabundið til starfa. Tímabundnar ráðningar eru þó heimilar en slíkar ráðningar í sama starf mega ekki vara samfellt lengur í tvö ár (41. gr. stml.).

Skylt er að ganga frá skriflegum ráðningarsamningi milli starfsmanns og forstöðumanns eða þess stjórnanda sem hefur til þess vald skv. 50 gr. stml. Í samningnum þurfa meðal annars að koma fram ráðningarkjör starfsmanns. Í reglum nr. 351/1996, um form ráðningarsamninga og skyldu til að upplýsa starfsmenn um ráðningarkjör, er kveðið á um þau atriði sem að lágmarki þurfa að koma fram í ráðningarsamningi. Gert er ráð fyrir þessum atriðum í fyrirmynd að eyðublaði fyrir ráðningarsamninga sem samtök ríkisstarfsmanna annars vegar og fulltrúar fjármála- og efnahagsráðherra hins vegar útbjuggu í tengslum við setningu reglnanna. Eyðublaðið er að finna á vefsíðu fjármála-og efnahagsráðuneytisins. Stofnunum er ekki skylt að nota það en þær verða ávallt að gæta að 2. gr. nefndra reglna um lágmarksákvæði í ráðningarsamningi.

Verði breytingar á ráðningarkjörum umfram það sem leiðir af lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða kjarasamningum skal stofnun staðfesta breytingarnar með skriflegum hætti, sbr. 4. gr. reglnanna.