Um vefinn

Stjórnendavefur.is er vefur ætlaður stjórnendum í ríkiskerfinu og er rekinn af fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Netfang vefsins er postur@fjr.is.

Fjármálaráðuneytið hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á að upplýsa forstöðumenn um rekstur og stjórnun stofnana með útgáfu leiðbeininga og annarri fræðslu og er vefurinn hluti af því verkefni.

Hlutverk

Vefnum er ætlað að miðla upplýsingum og leiðbeiningum er varða rekstur og stjórnun ríkisstofnana.

Markmið

  • Að stuðla að aukinni fræðslu til forstöðumanna og annarra stjórnenda ríkisstofnana með því að birta upplýsingar um stjórnun, fjármál og starfsmannamál.
  • Að setja upplýsingar fram þannig að þær séu aðgengilegar notendum.
  • Að birta á vefnum jafnóðum allt efni sem ráðuneytið býr yfir og á erindi við stjórnendur í ríkisrekstri.

Opnun

Geir H. Haarde, þáverandi fjármálaráðherra, opnaði vefinn á ráðstefnu um rekstur og stjórnun ríkisstofnana á Grand Hótel þann 19. mars 2003.