Setningarræða Geirs H. Haarde á ráðstefnu um rekstur og stjórnun stofnana. Dags. 26. maí 2004.

Góðir gestir. Mig langar að bjóða ykkur velkomin á ráðstefnu fjármálaráðuneytisins um rekstur og stjórnun ríkisstofnana sem að þessu sinni er haldin í tilefni af vali á ríkisstofnun til fyrirmyndar fyrr í mánuðinum.

Á síðustu árum hafa miklar breytingar orðið á rekstrarumhverfi ríkisins. Ríkið hefur dregið sig út úr verkefnum og falið þau einkaaðilum, önnur verkefni hefur ríkið leyst í samráði við einkamarkaðinn þar sem ríkið greiðir áfram fyrir þjónustu á grundvelli samninga. Ríkið mun þó ávallt sjálft standa fyrir rekstri fjölmargra verkefna í hefðbundnum ríkisstofnunum og verður að gera þær kröfur til rekstursins að hann sé bæði skilvirkur og hagkvæmur á sama tíma og leitast er við að veita góða þjónustu og ná árangri.

Eftirspurn eftir þjónustu af hálfu ríkisins fer vaxandi og ljóst er að aldrei verður hægt að uppfylla ítrustu kröfur allra í þeim efnum. Það er því nauðsynlegt að ráðuneyti og stofnanir hafi skýra framtíðarsýn og forgangsraði verkefnum með tilliti til stefnumörkunar ríkisins á hverjum tíma og að rekstur einstakra stofnana sé árangursdrifinn, þ.e. að gengið sé til verka með hagkvæmum hætti og skilvirkni höfð að leiðarljósi þannig að ríkisstofnanir séu sem best í stakk búnar að takast á við krefjandi verkefni í síbreytilegu umhverfi og uppfylla hlutverk sitt í samfélaginu.

Þann 10. maí síðastliðinn veitti ég Höskuldi Jónssyni forstjóra ÁTVR styttuna "Vegvísinn" sem viðurkenningu til ÁTVR sem ríkisstofnun ti fyrirmyndar árið 2004. Auk ÁTVR fékk Fiskistofa viðurkenningu fyrir góðan árangur og Heilbrigðisstofnunin á Akranesi sérstaka hvatningarviðurkenningu. Þessar stofnanir voru valdar úr hópi 17 stofnan sem komu til greina við valið. Ég vil nota tækifærið og óska ÁTVR aftu til hamingju með viðurkenninguna og þakka öllum hinum stofnunum fyrir þátttökuna.

Þetta var í 5 skipti sem fjármálaráðherra veitir slíka viðurkenningu sem er liður í því umbótarstarfi sem unnið hefur verið á síðustu árum. Fyrri verðlaunahafar eru Kvennaskólinn í Reykjavík, Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi, Landgræðsla ríkisins og Orkustofnun.

Það er í hlutverki fjármálaráðuneytisins að annast fræðslu og leiðbeiningar um rekstur og stjórnun stofnana og hefur á síðustu árum verið unnið markvisst í þeim efnum. Sett hefur verið innkaupastefna með mælanlegum markmiðum, útbúin sérhæfð námskeið fyrir ríkisstarfsmenn, komið á fót Stjórnendavef fyrir stjórnendur í ríkisrekstri o.fl. Í apríl sl. gaf fjármálaráðuneytið svo út Handbók um Árangursstjórnun sem ég vona að verði hvatning til forstöðumanna að halda áfram á þeirri leið til nýrra stjórnunarhátta sem mörkuð hefur verið á undanförnum árum og tileinki sér aðferðir árangursstjórnunar í auknum mæli þannig að rekstur ríkisins á hverjum tíma verði eins og best verður á kosið.

Það er við hæfi að nefna að í morgun undirritaði ég, ásamt forstöðumönnum stofnana skattkerfisins árangursstjórnunarsamninga fyrir allar 12 stofnanir skattkerfisins. Í samningunum er m.a. kveðið á um almenn markmið og áherslur í starfsemi stofnananna næstu fimm árin og um sérstök markmið og áherslur á næstu tveimur árum..

Það er von mín að þau erindi sem flutt verða hér í dag muni reynast öðrum innblástur til góðra verka og að stofnanir tileinki sér nútímalega stjórnunarhætti.

Ég lýsi hér með þessa ráðstefnu um rekstur og stjórnun stofnana setta.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica