Útboð á sérfræðiráðgjöf
Kaup ráðuneyta og ríkisstofnana á sérfræðiráðgjöf nema um 3 milljörðum króna á ári. Aukin áhersla verður lögð á að þessi kaup fari fram að undangenginni þarfagreiningu og útboði. Útboð á sérfræðiráðgjöf geta annaðhvort farið fram í tengslum við hvert verkefni eða með því að viðhalda lista yfir ráðgjafa sem leitað er til þegar verkefnin hefjast.