Útboð á rekstrarþáttum
Útboð á ýmsum rekstrarþáttum, t.d. bókhaldi, rannsóknaþjónustu, sérfræðiráðgjöf, ræstingum og vistun tölvukerfa hefur færst í aukana á síðustu árum. Ríkisstofnanir hafa í auknum mæli gert sér grein fyrir ávinningi af því að fela einkaaðilum tiltekna hluta starfseminnar, sér í lagi þá sem teljast til svonefndrar stoðþjónustu. Slík starfsemi felur oft og tíðum í sér að stofnanir hafa byggt upp sérhæfingu á tilteknu sviði sem nú er hægt að leysa á hagkvæmari hátt með aðkeyptri þjónustu.Eðlileg krafa til ríkisstofnana er að skoðað sé með reglulegum og skipulegum hætti hvort verkefni séu leyst með hagkvæmari hætti innan stofnunar en með því að kaupa þjónustuna á almennum markaði. Ákveðið aðhald felst í því að einkaaðilar geti beint fyrirspurnum til stofnana um rekstur einstakra þátta sem stofnanir verði að bregðast við.
Í tengslum við mótun innkaupastefnu munu ráðuneyti fara yfir með viðkomandi stofnunum þá þætti sem mögulegt er að bjóða út og tilgreina markmið og tímasetningar í því sambandi.
