Samræmd innkaup
Samræmd innkaup ríkisaðila eru mikilvæg til að tryggja hagkvæm innkaup. Í krafti magninnkaupa er hægt að ná fram miklum sparnaði með afsláttum frá listaverði. Samræmd innkaup ríkisins hafa einnig í för með sér hagræði fyrir birgja ríkisins þar sem auðveldara verður að fylgjast með innkaupaþörfum ríkisins og framkvæmd innkaupanna af hálfu ríkisins verður skilvirkari og einsleitari.Lykilatriði varðandi samræmd innkaup er að góð sátt ríki um framkvæmd þeirra. Samningar um samræmd innkaup ríkisins byggjast á hugmyndum um tiltekið magn og ræðst verð af því. Til að ná fram bestu kaupum er því nauðsynlegt að stofnanir ríkisins geri sér grein fyrir að skuldbindingar um kaup munu verða til þess að birgjar sjá sér fært að bjóða lægra verð. Hins vegar er hægt að gera tiltekna samninga þannig úr garði að þeir séu ekki skuldbindandi af hálfu ríkisins. Slíkt er þó ekki til þess fallið að tryggja bestu kaup.
Algengasta form samræmdra innkaupa eru rammasamningar sem Ríkiskaup gera fyrir hönd ríkisins um ýmsar rekstrarvörur og þjónustu. Öll ráðuneyti og stofnanir skulu vera áskrifendur að rammasamningskerfi Ríkiskaupa og nýta sér þannig hagkvæmni samræmdra innkaupa. Einstakir samningar skulu gerðir að undangenginni könnun á þörfum ríkisstofnana og sjái stofnanir sér ekki fært að vera með í einstökum samningum skulu þær gera Ríkiskaupum sérstaka grein fyrir því.
