Rafræn viðskipti
Ávinningur af rafrænum viðskiptum í rekstri ríkisins er ótvíræður. Ríkið hefur þegar hrundið af stað nokkrum stórum verkefnum á því sviði. Ber þar hæst ný fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins sem marka tímamót í ríkisrekstri með samræmingu og möguleika á rafrænum viðskiptum. Kerfin eru grundvallarforsenda þess að hámarksávinningur náist með nýtingu rafrænna viðskipta.Markmið ríkisins með rafrænum viðskiptum eru margþætt. Fyrir utan þann beina ávinning í rekstri sem rafræn viðskipti geta haft í för með sér getur ríkið í krafti stærðar sinnar, skipulags og aga í innkaupum stuðlað að uppbyggingu á markaði sem áður var ekki fyrir hendi. Dæmi um þetta er verkefni um innkaupakort og rafrænt markaðstorg. Þar gekk ríkið á undan með fordæmi sem fyrirtæki á almennum markaði hafa síðan nýtt sér.
Þróunarverkefnum vegna innkaupakorts ríkisins er lokið og tekist hefur að laga notkun kortsins að ríkisrekstrinum og sýnt hefur verið fram á margvíslega hagræðingu með notkun þess þegar kemur að smáinnkaupum. Fjárhagslegur ávinningur felst fyrst og fremst í auknum aga í innkaupum og minni umsýslukostnaði. Því er nú mælst til þess að öll ráðuneyti og ríkisstofnanir taki kortið í notkun og notfæri sér það hagræði sem hlýst af við innleiðingu þess.
Fjármálaráðuneytið og Ríkiskaup hafa haft frumkvæði að þróun á rafrænu markaðstorgi fyrir hönd ríkisins og er starfsemi torgsins að hefjast. Valin hefur verið sú leið að þróa torgið sem heildstætt viðskiptakerfi fyrir ríkið og almennan markað og mun kostnaður af notkun torgsins því dreifast milli ríkis og einkaaðila. Áhersla er lögð á það af hálfu ríkisins að stofnanir nýti sér notkun torgsins og þann mögulega ávinning sem þar býðst.
