Stefnumótun ráðuneyta

Innkaupamál eru stór hluti af rekstri ráðuneyta og stofnana og mikilvægt er að mótuð sé skýr stefna varðandi þennan málaflokk í þeim tilgangi að auka hagkvæmni í rekstri. Grundvöllur þessarar stefnumótunar verði innkaupastefna ríkisins. Fyrir hvert ráðuneyti og stofnanir þess verði farið yfir sérstök áhersluatriði varðandi undirbúning, fyrirkomulag og eftirlit innkaupa ásamt því að tilgreina mælanleg markmið sem stuðla að því að markmiðum innkaupastefnu ríkisins verði náð. Fjármálaráðuneytið mun veita ráðuneytum liðsinni við mótun stefnunnar og skilgreiningu markmiða. Innleiðing innkaupastefnu ráðuneyta verður hluti af samskiptum ráðuneyta og stofnana m.a. í tengslum við árangursstjórnunarsamninga.

Nauðsynlegt er að innkaup verði eitt af skilgreindum verkefnum í skipulagi ráðuneyta og stofnana. Í stærri stofnunum er æskilegt að sá starfsmaður, sem ber ábyrgð á innkaupum, heyri beint undir forstöðumann eða framkvæmdastjóra einstakra sviða.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica