Fræðsla og upplýsingar

Fræðsla og upplýsingar gegna lykilhlutverki í því að tryggja faglega framkvæmd innkaupa. Ríkiskaup hafa hlutverki að gegna á þessu sviði þar sem stofnunin hefur byggt upp sérþekkingu í málaflokknum. Ráðuneyti hafa einnig skyldum að gegna um að veita upplýsingar um áherslur í innkaupum, lagaleg málefni, markmið og eftirlit. Sérstök áhersla verður lögð á það á næstu árum að gefa út leiðbeiningar varðandi undirbúning og framkvæmd innkaupa almennt ásamt leiðbeiningum varðandi innkaup á tilteknum þáttum í rekstri stofnana.

Samstarf og samráð stofnana, sem vinna á svipuðu sviði, skapar grundvöll til að miðla reynslu og þekkingu ásamt því að samræmd innkaup skila aukinni hagkvæmni.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica