Innkaupastefna ríkisins


Stefnumótun
Með innkaupastefnunni eru sett skilgreind mælanleg markmið fyrir ríkið í heild, einstök ráðuneyti og varðandi einstök áhersluverkefni. Jafnframt eru skilgreindar þær almennu forsendur sem leggja á til grundvallar í undirbúningi og framkvæmd innkaupa ríkisins. Að lokum eru tilgreindar sérstakar áherslur og verkefni sem verða í forgrunni á næstu árum. Lögð er áhersla á að innkaup varða ekki einungis vöruna, þjónustuna eða verkið, sem verið er að kaupa, heldur allt það ferli sem á sér stað frá því að ákvörðun um innkaup er undirbúin og þar til viðkomandi innkaup eru hætt að nýtast.

Mikilvægt er að stjórnendur séu meðvitaðir um kostnað einstakra verkefna í rekstrinum og hver kostnaður við sambærileg verkefni er á almennum markaði. Með því að fela einkaaðilum tiltekin verkefni er hægt að ná fram markmiðum um hagræðingu, aukna samkeppnishæfni og auka fjölbreytni þjónustunnar sem byggir upp þekkingu í þjóðfélaginu og nýtist öðrum aðilum á markaði. Innkaupastefnan nær því einnig til þess að bjóða út verkefni eða rekstrarþætti sem nú eru hluti af ríkisrekstri.

Innkaupastefna ríkisins er leiðbeining fyrir ráðuneyti og ríkisstofnanir en gerir jafnframt kröfur um að farið sé að settum leikreglum og sýnt fram á skilgreindan sparnað á næstu árum. Framkvæmd innkaupa fylgir ábyrgð þar sem verið er að ráðstafa fjármunum ríkisins og hvílir skylda varðandi meðferð þessara fjármuna á þeim sem bera ábyrgð á og framkvæma innkaupin.

Innkaupastefna ríkisins hefur ekki lagalegt gildi en mælst er til þess að ráðuneyti og ríkisstofnanir leggi hana til grundvallar í innkaupum sínum. Efnisatriði stefnunnar hafa því gildi stjórnsýslufyrirmæla fyrir ráðuneyti og ríkisstofnanir.


Umhverfi opinberra innkaupa

Á undanförnum árum hefur verið unnið ötullega að umbótum á lagalegu umhverfi opinberra innkaupa ásamt því sem lögð hefur verið áhersla á leiðbeiningar og sérstök áhersluverkefni í málaflokknum. Innkaupastefnan byggist á þessari vinnu og skapar þann ramma sem ríkið ætlar sér að vinna eftir innan þess lagaumhverfis sem mótað hefur verið. Eftirfarandi mynd sýnir það umhverfi sem mótað hefur verið um skipulag opinberra innkaupa.

Mynd-umhverfi opinberra innkaupa
Mælanleg markmið
Með innkaupastefnu ríkisins eru sett eftirfarandi markmið um árangur og áherslur í opinberum innkaupum.

  • Hagræðing í innkaupum: Innkaup ríkisins nema um 75 milljörðum króna. Markmið með innkaupastefnu þessari er að spara 2500 milljónir króna á næstu fjórum árum eða 600-650 milljónir króna á ári. Þessum markmiðum verður m.a. náð með þeim sérstöku áhersluverkefnum sem tilgreind eru í stefnunni. Gert er ráð fyrir að sparnaðurinn skiptist með eftirfarandi hætti:


Mkr.
- Samræmd innkaup - Rafræn viðskipti
Minni umsýslukostnaður og styttri innkaupaferlar
1.100
- Útboð á rekstrarþáttum og sérfræðiþjónustu
500
- Stærri innkaup; verkefnastjórnun og samningsstjórnun
700
- Almenn þekking og bætt vinnubrögð
200
  • Rafræn viðskipti: Innkaup ríkisins í almennum rekstrar- og sérvörum verði almennt með rafrænum hætti. Má þar nefna almennar skrifstofuvörur, almennar rekstrarvörur, hugbúnað, matvörur, húsgögn og innréttingar. Lögð verður sérstök áhersla á rafræn innkaup á lyfjum og hjúkrunarvörum.
  • Rammasamningar: Velta rammasamninga aukist um 30% árlega. Þessari aukningu verði náð með því að fjölga vöruflokkum sem kerfið nær til og virkum notendum sem hagnýta sér kerfið.


Skilgreining innkaupa

Einstök ráðuneyti hafa skilgreint innkaupastefnu fyrir sig og sínar stofnanir. Í stefnunni koma fram helstu áherslur í innkaupum, verklag til að tryggja að þær nái fram að ganga og markmið sem m.a. taka mið af sparnaðarkröfu í tengslum við innkaupastefnu ríkisins. Ráðuneytin skulu stefnuna opinberlega og kynni stofnunum og starfsmönnum þeirra efni hennar. Ráðuneyti geri árlega grein fyrir árangri af innkaupastefnu.


Almennar forsendur innkaupastefnunnar

Innkaupastefnunni er ætlað að stuðla að virkri samkeppni á markaði og tryggja hagkvæmni í rekstri ríkisins. Stefnan skilgreinir helstu forsendur og sjónarmið sem leggja á til grundvallar við einstök innkaup. Hagkvæm innkaup eða bestu kaup eru hornsteinn stefnunnar. Önnur sjónarmið sem hafa verður í huga við innkaup eru:


Jafnframt skilgreinir stefnan skyldur og ábyrgð þeirra sem fara með framkvæmd innkaupa af hálfu ríkisins. Þessum starfsmönnum er ætlað að:

  • Fylgja lögum og reglum um opinber innkaup.
  • Haga innkaupum í samræmi við innkaupastefnu ríkisins.
  • Fylgja leiðbeiningum sem gefnar eru út um opinber innkaup.

Þeir sem fara með framkvæmd innkaupa bera ábyrgð skv. lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.


Sérstakar áherslur í innkaupum 2003-2006:





Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica