Spurningalisti - val á ríkisstofnun til fyrirmyndar árið 2004
Vinsamlegast svarið eftirfarandi spurningum með viðeigandi rökstuðningi og tölulegum upplýsingum.
Stefnumörkun
1. Liggur meginstefna stofnunarinnar fyrir, þ.e. (a) hlutverk (lögbundið og að öðru leyti), (b) stefna og (c) framtíðarsýn stofnunarinnar?
2. Er stefnumörkun útfærð í áætlunum með skýrum markmiðum?
3. Er stefnumörkun og markmiðum miðlað skýrt og markvisst til starfsfólks?
4. Eru starfsmenn upplýstir um frammistöðu stofnunarinnar með tilliti til settra markmiða?
Fjármálastjórn
5. Hefur stofnunin (a) fylgt fjárlögum og (b) hefur rekstrarniðurstaða verið innan ramma fjárheimilda?
6. Eru (a) gerðar rekstraráætlanir fyrir hvert ár sem byggjast á því að ná faglegum markmiðum innan ramma fjárheimilda og (b) þær notaðar sem virk stjórntæki í rekstrinum?
7. Er kostnaður við einstök verkefni eða einingarkostnaður mikilvægustu tegunda af þjónustu stofnunarinnar þekktur?
8. Hefur framleiðni stofnunarinnar (þ.e. hverju stofnunin annar fyrir sama kostnað) farið vaxandi eða minnkað á síðustu árum?
Notendur
9. Leggur stofnunin áherslu á mæta þörfum notenda þjónustunnar með starfsemi sinni, þ. á m. fyrir upplýsingagjöf?
10. Hefur hún nýlega framkvæmt athugun á þörfum og væntingum notenda sem nýtt er til að aðlaga og bæta þjónustu?
Vinnuferlar / verkferlar
11. Liggur fyrir skrifleg lýsing á mikilvægustu ferlum innan stofnunarinnar, t.d. í gæðahandbók?
12. Hefur nýlega verið unnið að endurbótum á mikilvægustu ferlum stofnunarinnar í þeim tilgangi að bæta árangur?
Starfsmenn - þróun og lærdómur
13. Er unnið skipulega að því bæta reksturinn til að ná betri árangri í framtíðinni m.t.t. stefnumörkunar?
14. Er unnið meðvitað að þróun nýjunga í rekstrinum til að (a) bæta þjónustu og/eða (b) auka hagræði í rekstri?
15. Er rekin virk starfsmannastefna sem leggur m.a. áherslu á (a)frammistöðustjórnun (þ.e. hvort starfsmönnum sé umbunað fyrir það sem vel er gert og tekið á því þegar starfsmaður stendur sig ekki sem skyldi?), (b) þýðingu starfsmanna í rekstrinum (c) fræðslu þeirra, (d) ánægju þeirra í starfi og möguleika til að (e) bæta árangur sinn og vaxa í starfi?
