Viðbótarlaun

Fjármálaráðherra undirritaði reglur um greiðslu viðbótarlauna 7. mars 2007 og tóku þær þegar gildi. Jafnframt undirritaði ráðherra yfirlýsingu til stéttarfélaga um upplýsingagjöf til þeirra. Tekið skal fram að engar sérstakar fjárveitingar eða launabætur verða greiddar til stofnana vegna viðbótarlauna. Ráðuneytið sendi stofnunum reglurnar og yfirlýsingu ráðherra ásamt tæknilegum leiðbeiningum með bréfi dags. 14. mars 2007.