Viðtaka og verklok - Opinber innkaup
Verki telst lokið þegar verkkaupi hefur formlega tekið á móti því. Það gerist að lokinni uppsetningu búnaðar og viðtökuprófun og þegar verktaki hefur staðið við aðra afhendingarskilmála verksamnings.Mælt er með því að verktaki geri nauðsynlegar tæknilegar prófanir, bæði á kerfishlutum og heildarkerfi, áður en að viðtökuprófi kemur. Í handbók þessari er orðið viðtökuprófun notað yfir úttekt sem fram fer í lok verksins.
Viðtökuprófun er í því fólgin að gagnavinnslukerfið er prófað samkvæmt prófunarlýsingu. Eðlilegt er að verktaki aðstoði við gerð prófunarlýsingar og áætlunar um viðtökuprófun. Viðtökuprófunin á að sýna að kerfið standist allar kröfur sem gerðar eru í verksamningi og öðrum samþykktum lýsingum. Ef verkkaupi telur kerfinu áfátt er það hans að benda á gallana. Ef aðfinnslur eiga við rök að styðjast verður verktaki að bæta úr þeim áður en verkið telst afhent.
Prófun á hugbúnaði fer fram í nokkrum skrefum. Í fyrsta lagi er sannreynt að hugbúnaðurinn vinni á þeim vélbúnaði sem hann er ætlaður. Í öðru lagi er gengið úr skugga um að einstakir hlutar kerfisins vinni saman á eðlilegan hátt. Að lokum fer fram prófun á kerfinu í raunverulegu umhverfi og mælingar á afkastagetu, til dæmis svartíma. Verktaka ætti að gefa ákveðinn frest til að framkvæma fyrstu tvær prófanirnar.
Eftir að búnaðurinn hefur staðist prófanir getur hann talist formlega móttekinn til reynslu. Afhending gerist almennt í eftirfarandi þrepum: Kerfið er uppsett til notkunar og einstakir hlutar þess vinna saman á eðlilegan hátt. Notandi hefur reynt kerfið í raunverulegu umhverfi og það staðist kröfur um afkastagetu og vinnslu. Kerfið hefur verið notað við lausn verkefnisins í ákveðinn tíma. Verkkaupi tekur formlega á móti kerfinu enda sé rekstraröryggi í samræmi við verksamning.
Verktaki getur í ýmsum tilfellum krafist lengingar á skilafresti. Algeng ástæða er að verkkaupi hafi farið fram á breytingar á verkinu sem seinka framgangi þess. Einnig þekkist að verklýsing, búnaður, aðstaða eða annað, sem verkkaupi á að láta í té, sé ekki til reiðu á umsömdum tíma. Óviðráðanleg atvik (force majeure) geta haft áhrif á afhendingu.
