Skilamat

Þegar lokið hefur verið við verklega framkvæmd skal lögum samkvæmt fara fram skilamat á öllum þáttum hennar, þ.m.t. þjónustu ráðgjafa. Í matinu skal gera grein fyrir því hvernig ráðgjöfum hefur tekist miðað við áætlun. Enn fremur skal gerður samanburður við hliðstæða ráðgjöf sem þegar hefur verið metin.

Framkvæmdasýsla ríkisins setur starfsreglur um gerð skilamats við opinberar framkvæmdir og eru þær sniðnar að áfangaskiptingu laganna um skipan opinberra framkvæmda. Reglur um fyrirkomulag skilamats voru gefnar út af Framkvæmdasýslu ríkisins og staðfestar af fjármálaráðuneyti 21. september 2001 og er að finna á heimasíðu stofnunarinnar www.fsr.is.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica